Framtíðarsamfélag án aldursfordóma
Skýrslan Framtíðarsamfélag án aldursfordóma fjallar um verkefnið Framtíðarfestivalinu 2026 sem haldið var á Borgarbókasafninu Grófinni. Markmið verkefnisins var að leiða saman fólk á ólíkum aldri til að ræða drifkrafta aldursfordóma, skoða hlutverk tækni og efla framtíðarlæsi í átt að samfélagi þar sem aldur er ekki hindrun heldur styrkur.
Viðburðurinn var samstarf Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og hluti af verkefninu Northern Futures Hub.





